Hjálp óskast
En samt eitthvað svo glatað
Að auglýsa vefslóð
Íslensk tónlist er góð
Marklaust hjá ÍMARK
Serenity
Minnis-triggerar
Lagið sem drap Bítlana
Do Anything
freyr.fresnik.com : júní 20, 2003 |
||
|
Random quote
Eagles may soar, but weasels don't get sucked into jet engines.
Safn
Nýjustu færslurnar
Fjarstýringaeinföldun
Hjálp óskast En samt eitthvað svo glatað Að auglýsa vefslóð Íslensk tónlist er góð Marklaust hjá ÍMARK Serenity Minnis-triggerar Lagið sem drap Bítlana Do Anything
Plögg
--
fresnik.com
14:21:44 up 281 days, 2:05, 2 users, load average: 0.07, 0.20, 0.40
|
júní 20, 2003Framtíðin og TónlistinÉg hef verið að fylgjast með höfundarréttarmálum á Slashdot undanfarið og margt áhugavert komið fram. Mér fannst þó einn hitta naglan algjörlega á höfuðið (nenni ekki að finna URL, sorry) þegar einmitt var talað um þetta hvernig fólk ætti að aðlagast þessum breytingum, því að, feis itt, það er alveg sama hversu mörgum Napsterum verði lokað eða hversu ólöglegt það verður að afrita tónlist, fólk mun halda því áfram. Hann tók Apple iTunes (svipað og tonlist.is) sem dæmi um góða lausn og að það væri útgefendum sjálfum að kenna að fólk væri að afrita tónlist á fullu og "skerða tekjur" þeirra. Það hefur verið græðgi hjá þeim að ætlast til þess að fólk borgi 2.000 kr fyrir kannski tvö áhugaverð lög og 10 ekki svo áhugaverð lög í staðin fyrir að gefa fólki kost á að fá það sem það borgar fyrir. Kostur sem hefur orðið til með tilkomu Internetsins. Ef að útgefendur hefðu áttað sig á þessu strax hefðu þeir jafnvel geta boðið upp á betri staðal en mp3 og gert hann útbreiddari (já ég veit að það eru til betri staðlar en mp3 - Beta er líka miklu betra en VHS). Útgefendur eru hægt og rólega að brenna inni út af eigin græðgi og óhóflegri þörf til að stjórna tónlistarflæði (getur einhver sagt markaðssett boy-bönd?). Í staðin fyrir að fagna möguleika Internetsins og þá sérstaklega tekjumöguleikana halda þeir áfram að gefa út geisladiska með misgóðu efni á okurprís og lögsækja allt og alla sem gera ekki eins og þeir segja.
Freyr skrifaði þetta þann 20. jún 2003 kl. 09:24 | Varanleg slóð
| Athugasemdir (2)
|
|