Hjálp óskast
En samt eitthvað svo glatað
Að auglýsa vefslóð
Íslensk tónlist er góð
Marklaust hjá ÍMARK
Serenity
Minnis-triggerar
Lagið sem drap Bítlana
Do Anything
freyr.fresnik.com : apríl 3, 2003 |
||
|
Random quote
If at first you don't succeed, destroy all evidence that you tried.
Safn
Nýjustu færslurnar
Fjarstýringaeinföldun
Hjálp óskast En samt eitthvað svo glatað Að auglýsa vefslóð Íslensk tónlist er góð Marklaust hjá ÍMARK Serenity Minnis-triggerar Lagið sem drap Bítlana Do Anything
Plögg
--
fresnik.com
00:52:58 up 206 days, 4:24, 0 users, load average: 0.07, 0.15, 0.10
|
apríl 3, 2003Margmiðlun -> EinmiðlunÍ gær komu Siggi Palli og Jósi í heimsókn og við horfðum á Bowling for Columbine. Þessi mynd er einstök snilld sem ég mæli með að allir fari að sjá á 101 kvikmyndahátíðina núna í apríl. En ég ætla nú ekki að koma með meira rant um þessa mynd, enda hefur hún fengið allt hrós sem hægt er að gefa henni. Hins vegar var ég svo sniðugur að ná í fréttamannaviðtalið við Michael Moore, leikstjóra (m.fl.) myndarinnar, strax á eftir óskarsverðlaunaafhendinguna (innanlandsdánlód hér [25,7 MB]). Það kemur margt sniðugt fram þar og Michael fær að tjá sig aðeins lengur en í 45 sekúndur og án truflanna. Eins og hefur eflaust ekki farið framhjá mörgum, þá er ég mikill Linux maður, en þessi klippa er á ASF formatti (Microsoft Advanced Streaming Format) og því ekki hægt að spila í neinni margmiðlunargræju sem fylgir Mandrake Linux 9.1, ekki frekar en WMV (Windows Media Video), MOV (Apple Quicktime), RM (Real Media) eða fleiri "obscure" vídeó standarda. Til allrar hamingju er til forrit sem heitir mplayer sem getur spilað öll þessu ofangreindu formöt auk haug af öðrum (DivX, VCD, DVD, ...). Hann spilar líka alla hljóðfæla (þá helst WMA), en fyrir good old mp3/ogg spilun kemur ekkert annað til greina en xmms, enda er hér fóstur frændi WinAmps á ferð. Þá er komið að stóru játningunni. Ég nota líka Windows, enda er það nokkuð gott leikja-stýrikerfi og leikjaframleiðendur virðast einblína á að gefa út leiki aðeins fyrir Windows. Hvort að Windows sé betra en Linux í þessum geira er hins vegar annað mál og mun ég ræða það síðar. Með Windows fylgir WMP (Windows Media Player) sem á að vera svona allsherjar margmiðlunarforrit, spilar allan andskotan af vídeó- og hljóðformöttum, en sjálfur finnst mér það ekki gott forrit. Fyrst og fremst er hann of "bloated", þ.e. alvöru fídusar og hraði víkja fyrir flottara útlit og óþarfa virkni, en þar að auki spilar hann ekki t.d. MOV eða RM, sem eru nokkur algeng formöt. Til þess að spila þannig skrár þarf að sækja aðra spilara sem eru svo einnig jafn "bloated" og WMP, þannig að þú ert kominn með fullt af spilurum sem taka upp mikið af diskplássi og resourceum. Ekki veit ég hvort það sé til jafn hentug lausn fyrir Windows og mplayer er fyrir Linux, en þessi virðist höndla að spila öll ofangreind formöt án þess að vera "bloated". Hef ekki prófað hann sjálfur ennþá, læt vita þegar ég er búinn að því. Ef eitt forrit sér um að spila allar tegundir af hreyfimyndum, myndum og hljóði, heitir þetta þá ekki einmiðlun frekar en margmiðlun?
Freyr skrifaði þetta þann 3. apr 2003 kl. 13:38 | Varanleg slóð
| Athugasemdir (2)
|
|